Fósturheimili

Fósturheimilin

Mikilvægur hlekkur í velferð villtra og umkomulausra katta

Fósturheimili Villikatta eru af ýmsum toga og tilbúin fyrir mismunandi verkefni. Það vantar alltaf góð fósturheimili í hópinn okkar, en okkar skjólstæðingar eru til dæmis umkomulausir kettlingar eða kettlingafullar læður, ljúfar heimiliskisur sem bíða eftir fullkomnu framtíðarheimili og villtar kisur sem hafa mikla möguleika á að læra á heimilislífið.

Hverjum vilt þú hjálpa?

Við metum vandlega öll fósturheimili og vöndum valið þegar það kemur að því að koma kisum fyrir. Ekki öll treysta sér í harðvíraða villikisu, en búa yfir þolinmæðinni sem þarf til að leyfa hræddri kisu að komast úr skelinni. Önnur hafa reynslu og treysta sér í að hugsa um veikar kisur eða aðstoða kettlingafullri læðu að gjóta og koma kettlingunum á legg.

Fullorðnar kisur

Yfirleitt kettir sem eru búnir að vera á vergangi eða hafa týnst. Oftast eru þeir ekki örmerktir og því nær ómögulegt að hafa uppi á fyrri eiganda, ef eigandi er ekki í virkri leit sjálfur.

Þessir kettir eru oft algjör yndi og kunna illa við sig í athvörfunum okkar. Við þurfum fósturheimili fyrir þessa ketti á meðan við auglýsum þá í von að hafa uppi á eiganda, eða á meðan við finnum ný heimili ef enginn eigandi gefur sig fram.

Villikisur í mönnun

Fæddust eða hafa búið nær allt sitt líf úti en eiga að einhverjum ástæðum ekki afturkvæmt út. Oft eru þetta kisur sem hafa misst svæðið sitt, eru orðnar gamlar eða eru ekki við fulla heilsu.

Þessir kettir þurfa fósturheimili sem eru skilningsrík og þolinmóð. Villikettir í eðli sínu treysta ekki mannfólki en njóta þess að komast inn í hlýjuna og öryggið. Það tekur tíma að vinna inn traust þeirra, en það er þeim mun meira gefandi þegar þú nærð að klappa kisunni í fyrsta skipti, eða þegar hún læðist upp í rúm til að kúra.

Veikar kisur

Finnast illa farnir, þá oft búnir að vera á vergangi lengi. Þessir kettir eru oft hræddir og þurfa að komast í rólegt umhverfi þar sem hægt er að sinna honum betur en við getum gert innan um allar hinar kisurnar sem eru í okkar umsjá.

Fósturheimilið gæti þurft að sjá um lyfjagjafir og skutl til dýralæknis eftir þörfum.

Munaðarlausir kettlingar

Kettlingar sem læðan hefur hafnað eða jafnvel finnast umkomulausir úti á víðavangi. Það fer eftir aldri kettlinganna, hversu mikla vinnu þeir krefjast. Mjög ungir kettlingar þurfa pelagjafir allan sólarhringinn, yngstu á tveggja tíma fresti og svo sjaldnar eftir því sem þeir eldast.

Þessi vinna getur verið mjög krefjandi, en hún er líka mjög gefandi. Sú þreyta sem fylgir í byrjun er fljót að gleymast þegar kettlingarnir stækka og þroskast. Ef þú tekur að þér kettling sem er orðinn nokkurra vikna, þá felst vinnan aðallega í því að venja kettlinginn við að umgangast manninn og hlúa vel að honum. Þeim kettlingum geta fylgt lyfjagjafir og dýralæknaheimsóknir.

Kettlingafullar læður eða læður með kettlinga

Yfirleitt villikattalæður sem eru ekki vanar manninum. Þær eru hræddar og fela sig gjarnan. Þess vegna er nauðsyn að hafa sérherbergi svo þær komist ekki langt. Læðurnar þurfa ró og næði og aðgang að mat/vatni og kattasandi. Eftir að kettlingarnir fæðast þá þarf að “manna þá”. Það þarf að undirbúa þá fyrir sitt framtíðarheimili og venja þá við mannlega snertingu.

Læðurnar eru hjá kettlingunum fyrstu vikurnar, en síðan eru kettlingarnir í þinni umsjá þar til þeir fara á heimili.

Það fylgir því mikil ábyrgð að taka að sér kisu í fóstur.  Fósturheimilin þurfa sjálf að sjá um allan þann kostnað sem fylgir venjulegu kattarheimilishaldi.  Villikettir sjá hins vegar um allan dýralæknakostnað.

Ef það eru önnur gæludýr á heimilinu er þess krafist að þau séu bólusett og geld, þar erum við með hag ykkar gæludýrs í huga. 

Þegar kemur að því að velja framtíðarheimili fyrir kisuna, hefur þitt álit og skoðun töluvert að segja. Þú þekki þína kisu og veist best hvað henni hentar.

Lágmarksaldur er 20 ára