Our Cats

Can you give them a second chance?

There is nothing quite like the feeling when a scared kitty starts to trust humans again. For some cats, it takes time and patience to get there, while others are immediately happy to be in a safe environment with loving people.

Many of our cats are former feral cats, stray cats that were found outside or cats that were given to the organization when their previous owners could no longer care for them. We believe that all cats deserve a second chance and we do our best to give them love and care while we find them new homes.

Which one can you provide with a beautiful future?

All cats and kittens in our care have been dewormed, vaccinated, microchipped and neutered/spayed. A modest fee is charged to cover the costs, and further information is provided during the application process.

Búkolla og Guttormur

Eastern Region

Systkynin Guttormur og Búkolla eru í heimilisleit, best væri ef þau gætu farið saman á heimili. Þau eru fyrrum fjósakettlingar sem hafa ákveðið að flytja í kaupstað og eru um 9 mánaða (maí 2026).

Þar sem meira er um kýr en menn í fjósinu þá eru þau ekki alveg búin að venjast mannfólkinu. Samt eru þau bæði búin að komast að því að mannfólkið er ágætt til ýmissa hluta og þá helst til að gefa gott klapp og nammi.

Guttormur, oft kallaður Gutti, stefnir í rólyndis kött. Honum finnst fátt betra en góður lúr en líka að fá klapp sem hann launar iðulega með rausnarlegu kattabaði.

Búkolla, kölluð Búa, er í rauninni dálítið þversagnakennd. Hún er minni í sér og felur sig frekar en Gutti. En þegar hún er örugg með sig þá vill hún klapp og klór. Mikið klapp og kvartar ef henni finnst þetta ekki nógu mikið.

Íla

Capital Region

Íla er líklega fædd 2018 og er ekki alveg vitað alla söguna hennar en hún var lengi úti að spjara sig áður en hún kom til okkar. Fyrst var hún vel stygg og leyfði enga snertingu en með mikla vinnu sjálfboðaliða hefur hún náðst úr skelinni og á fósturheimili sínu kom í ljós að hún væri algjör kúrukisa. Henni þykir fátt betra en að vera nálægt fólkinu sínu, fær klapp og ást og leitar þá að heimili sem gæti veitt henni það áfram.

Henni myndi ganga best sem eina kisan en gæti þolað aðra eldri og rólega kisu, hún þarf einnig tíma til að koma úr skelinni sinni og fá að blómstra á sínum hraða Hún þarf að fá að vera innikisa á heimili án ungra barna.

Kútur

Capital Region

Kútur er líklega fæddur 2022, fannst á vergangi og var mjög lítill í sér, enda líklega búinn að vera á vergangi ansi lengi.

Þegar hann komst á fósturheimili kom í ljós algjör kelirófa, þó hann sé ennþá var um sig. Hann elskar að liggja hjá heimilismeðlimum og fá smá klapp, klór og almennt dekur. Hann er líka mjög leikglaður og elskar að leika með bolta og annað dót 😸

Kútur óskar eftir að fá að vera eini kisinn á rólegu heimili með engum ungum börnum. Hann vill endilega fá að kúra hjá manni og fá að leika við fólkið sitt. ❤️

Lena og Lea

Capital Region

Systurnar Lena og Lea óska eftir framtíðarheimili eða langtímafósturheimili. Þær eru líklega fæddar 2019 og 2020, koma saman úr stórum kisuhópi af Suðurlandinu og hafa í gegnum árin orðið bestu vinkonur.

Lea (gul og hvít) er afskaplega ljúf og róleg, þiggur gjarnan klapp og tekur það að sér að láta fóstruna sína vita að það er kominn tími fyrir mat. Hún jafnvel sækist í smá kúr með mannfólki þegar vel liggur á.

Lena (þrílit) passar mjög vel upp á systur sína og tekur því verkefni mjög alvarlega. Hún passar sig meira í kringum fólk og er oft á varðbergi – en leyfir sér að þiggja klapp í réttum aðstæðum.

Þær óska eftir rólegu heimili, gætu gengið með öðrum rólegum/öldruðum dýrum. Þær henta ekki á heimili með ungum börnum. Systurnar eru líka í yfirþyngd og þurfa heimili sem getur veitt þeim aðhald.

The adult cats and kittens in our care are always coming and going, so not all of them end up here on our website. You are welcome to fill out an application and if we think we have a good match for you, we will contact you. If you have any specific requests regarding personality, indoor or outdoor cat, etc., please be sure to mention this in the application. We always do our best not only to find suitable homes for our cats, but also to find the perfect match for you.

Please keep in mind that all of our work is done on a volunteer basis and we therefore cannot respond to all applications. You are welcome to send a new application to remind us.

en_GB