{"id":408,"date":"2016-12-04T14:11:26","date_gmt":"2016-12-04T14:11:26","guid":{"rendered":"http:\/\/www.villikettir.is\/?p=408"},"modified":"2025-06-01T14:37:25","modified_gmt":"2025-06-01T14:37:25","slug":"upprifjun-a-samskiptum-villikatta-vid-mast-arid-2016","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/villikettir.is\/en\/upprifjun-a-samskiptum-villikatta-vid-mast-arid-2016\/","title":{"rendered":"Upprifjun \u00e1 samskiptum VILLIKATTA vi\u00f0 MAST \u00e1ri\u00f0 2016"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd lj\u00f3si fr\u00e9tta um Br\u00fanegg og gagnr\u00fdni \u00e1 MAST sem eftirlitisstofnun \u00fe\u00e1 langar okkur a\u00f0eins a\u00f0 rifja upp me\u00f0 ykkur samskipti okkar vi\u00f0 \u00fe\u00e1 stofnun \u00e1 \u00feessu \u00e1ri vegna 3ja m\u00e1la sem vi\u00f0 tilkynntum til MAST \u00e1 \u00feessu \u00e1ri.<\/p>\n<ol>\n<li><strong>100 katta m\u00e1li\u00f0<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>\u00cd apr\u00edl 2016 haf\u00f0i kona samband vi\u00f0 okkur \u00fear sem h\u00fan var komin \u00ed vanda me\u00f0 offj\u00f6lgun \u00e1 k\u00f6ttum. H\u00fan haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur \u00e1tt samskipti vi\u00f0 MAST fyrir einhverjum \u00e1rum og \u00fe\u00e1 voru \u00f6ll d\u00fdrin afl\u00edfu\u00f0. Konan gat ekki hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 l\u00e1ta d\u00fdrin ver\u00f0a afl\u00edfu\u00f0 og haf\u00f0i \u00fev\u00ed samband vi\u00f0 VILLIKETTI.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um samband vi\u00f0 MAST og l\u00e9tum vita af \u00feessu og jafnframt a\u00f0 vi\u00f0 myndum fara \u00e1 sta\u00f0inn og kanna a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00fev\u00ed konan haf\u00f0i heimila\u00f0 okkur \u00fea\u00f0. \u00dear voru 100 kettir og 6 hundar.\u00a0 Mj\u00f6g sl\u00e6mt \u00e1stand var \u00e1 sta\u00f0num, miki\u00f0 af veikum k\u00f6ttum og kettlingum, enginn matur n\u00e9 sandur og ekkert rennandi vatn. \u00cd \u00feessari fyrstu fer\u00f0 \u00fe\u00e1 t\u00f3kum vi\u00f0 27 ketti me\u00f0 okkur, veikustu d\u00fdrin og allar l\u00e6\u00f0ur me\u00f0 kettlinga.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 g\u00e1fum sk\u00fdrslu til MAST og l\u00fdstum a\u00f0st\u00e6\u00f0um, og b\u00e1\u00f0um \u00fe\u00e1 a\u00f0 fara \u00ed m\u00e1li\u00f0.\u00a0 Okkar skilningur var a\u00f0 MAST myndi flj\u00f3tlega heims\u00e6kja heimili\u00f0 og kanna a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.\u00a0 En ekkert ger\u00f0ist vikum saman, svo vi\u00f0 s\u00e1um okkur tilneyddar til a\u00f0 fara a\u00f0ra fer\u00f0 og s\u00e6kja kettlingafullar l\u00e6\u00f0ur og fleiri veikar kisur, auk \u00feess a\u00f0 fara me\u00f0 meira af mat, kattasandskassa, b\u00e6li og sand, en vi\u00f0 reyndum a\u00f0 sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 d\u00fdrin hef\u00f0u n\u00f3g \u00e1 me\u00f0an vi\u00f0 bi\u00f0um eftir MAST.\u00a0 \u00deessi fer\u00f0 var \u00ed lok apr\u00edl.\u00a0\u00a0 Vi\u00f0 l\u00e9tum MAST aftur vita af heims\u00f3kninni og a\u00f0st\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>Enn bjuggumst vi\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 MAST myndi fara \u00e1 sta\u00f0inn og kanna m\u00e1li\u00f0. Loks f\u00f3ru \u00feeir \u00ed eina heims\u00f3kn og \u00fea\u00f0 t\u00f3k langan t\u00edma a\u00f0 gefa \u00fat sk\u00fdrslu sem send var eigandanum og henni gefinn frestur til \u00farb\u00f3ta.\u00a0 \u00c1 me\u00f0an \u00e1ttu d\u00fdrin a\u00f0 svelta, deyja og fj\u00f6lga s\u00e9r a\u00f0 vild. Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00fev\u00ed \u00ed 3ju fer\u00f0ina til a\u00f0 s\u00e6kja d\u00fdr, \u00feann 27.4. og s\u00f3ttum veikar kisur og f\u00f3rum me\u00f0 mat og sand.\u00a0 4. fer\u00f0ina f\u00f3rum vi\u00f0 stuttu s\u00ed\u00f0ar, \u00ed apr\u00edllok 2016, t\u00f3kum enn fleiri kisur og enn\u00fe\u00e1 var eigandinn \u00e1 fresti til a\u00f0 b\u00e6ta \u00e1standi\u00f0. \u00deann 4. ma\u00ed f\u00f3rum vi\u00f0 \u00ed 5. sinn og s\u00f3ttum fleiri kisur og f\u00f3rum me\u00f0 mat og sand.\u00a0\u00a0 \u00deann 14. j\u00fal\u00ed var fari\u00f0 \u00ed 6. fer\u00f0ina og s\u00f3ttar veikar kisur, kettlingafullar kisur og n\u00fdgotnar l\u00e6\u00f0ur og einnig 4 illa farnir hundar sem hundasamf\u00e9lagi\u00f0 \u00e1 Facebook t\u00f3k upp \u00e1 s\u00edna arma.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00fearna var komi\u00f0 vorum vi\u00f0 or\u00f0nar ansi s\u00farar \u00fat \u00ed MAST sem haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 \u00e1standi\u00f0 vi\u00f0gangast s\u00ed\u00f0an \u00ed lok mars, 3 og h\u00e1lfur m\u00e1nu\u00f0ur \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feeir ger\u00f0u neitt nema fara \u00ed 2 eftirlitisfer\u00f0ir \u00e1 heimili\u00f0, skrifa sk\u00fdrslu og gefa eiganda frest.\u00a0 \u00c1 me\u00f0an voru f\u00e1rveik d\u00fdr \u00e1 heimilinu sem sultu og kettlingar h\u00e9ldu \u00e1fram a\u00f0 f\u00e6\u00f0ast.\u00a0 Ni\u00f0ursta\u00f0an var\u00f0 svo s\u00fa a\u00f0 \u00fea\u00f0 var &#8222;okkur&#8220; a\u00f0 kenna a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um fari\u00f0 a\u00f0 skipta okkur af \u00feessu m\u00e1li, \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 komi\u00f0 \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 VILLIKATTA, vi\u00f0 s\u00e1tum uppi me\u00f0 allan kostna\u00f0 sem af \u00feessu hlaust og \u00e1byrg\u00f0ina \u00e1 \u00f6llum d\u00fdrunum sem vi\u00f0 bj\u00f6rgu\u00f0um \u00far \u00feessum h\u00f6rmungar a\u00f0st\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00cd lok j\u00fali voru eftir um 25 kisur \u00ed h\u00fasinu og 2 hundar.\u00a0\u00a0 MAST taldi \u00fe\u00e1 \u00e1standi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 vi\u00f0undandi og gaf eiganda heimild til a\u00f0 halda \u00feeim d\u00fdrum sem eftir voru.\u00a0 Vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um \u00fev\u00ed a\u00f0 fara me\u00f0 allar kisurnar sem eftir voru \u00ed geldingu og var \u00fea\u00f0 gert \u00ed 3 hollum, \u00feannig g\u00e1tum vi\u00f0 tryggt a\u00f0 \u00fe\u00e6r sem eftir voru myndu a.m.k. ekki halda \u00e1fram a\u00f0 fj\u00f6lga s\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 reyndist okkur mj\u00f6g erfitt a\u00f0 f\u00e1 uppl\u00fdsingar fr\u00e1 MAST \u00e1 me\u00f0an \u00e1 \u00feessu m\u00e1li st\u00f3\u00f0, \u00feeir b\u00e1ru vi\u00f0 uppl\u00fdsingarstefnu stofnunarinnar og a\u00f0 stofnunin veitir ekki uppl\u00fdsingar um a\u00f0ger\u00f0ir hennar \u00ed m\u00e1lum sem eru \u00ed gangi hverju sinni.<\/p>\n<p>\u00c1byrg\u00f0inni var varpa\u00f0 yfir \u00e1 f\u00e9lagi\u00f0 Villiketti af \u00fev\u00ed vi\u00f0 stigum inn \u00ed m\u00e1li\u00f0, enda t\u00f6ldum vi\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldu okkar samkv\u00e6mt d\u00fdraverndarl\u00f6gum a\u00f0 bjarga d\u00fdrum \u00ed ney\u00f0 me\u00f0an stofnunin MAST a\u00f0haf\u00f0ist l\u00edti\u00f0 sem ekkert, nema skrifa sk\u00fdrslur og gefa fresti \u00e1 kostna\u00f0 d\u00fdranna sem enn dv\u00f6ldu vi\u00f0 hungursney\u00f0 og veikindi.<\/p>\n<ol start=\"2\">\n<li><strong>M\u00e1l meind\u00fdraey\u00f0is sem sag\u00f0ist hafa fanga\u00f0 16 villiketti \u00ed Hafnarfir\u00f0i, m.a. eyrnaklippta ketti sem Villiketti h\u00f6f\u00f0u l\u00e1ti\u00f0 gelda \u00ed j\u00fal\u00ed 2016<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>Anna\u00f0 m\u00e1l sem vi\u00f0 tilkynntum til MAST \u00e1 \u00e1rinu var vegna meind\u00fdraey\u00f0is sem sag\u00f0ist hafa fanga\u00f0 16 villiketti \u00ed b\u00e6jarlandi Hafnarfjar\u00f0ar.\u00a0 Vi\u00f0 n\u00e1nari eftirgrennslan kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6r haf\u00f0i alls ekki be\u00f0i\u00f0 um \u00feessa f\u00f6ngun og ekki heldur Heilbrig\u00f0iseftirliti\u00f0.\u00a0 L\u00f6gma\u00f0ur Hafnarfjar\u00f0arb\u00e6jar og Villikettir sendu sameignilega kv\u00f6rtun til MAST yfir framfer\u00f0i \u00feessa meind\u00fdraey\u00f0is \u00feann 25.7.2016.\u00a0 S\u00ed\u00f0an \u00fe\u00e1 hefur l\u00f6gma\u00f0ur f\u00e9lagsins \u00edtreka\u00f0 reynt a\u00f0 f\u00e1 uppl\u00fdsingar um gang m\u00e1la og ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u en ekki veri\u00f0 svara\u00f0.\u00a0 N\u00fa eru komnir r\u00famir 4 m\u00e1nu\u00f0ir s\u00ed\u00f0an kv\u00f6rtunin var send og enn\u00fe\u00e1 ENGIN sv\u00f6r.<\/p>\n<ol start=\"3\">\n<li><strong>M\u00e1l 6 kettlinga sem hent var \u00fat vi\u00f0 ruslag\u00e1m \u00ed Njar\u00f0v\u00edk<\/strong><\/li>\n<\/ol>\n<p>\u00deri\u00f0ja m\u00e1li\u00f0 sem vi\u00f0 tilkynntum til MAST var\u00f0a\u00f0i 6 kettlinga sem hent var \u00fat eins og hverju \u00f6\u00f0ru rusli vi\u00f0 g\u00e1ma \u00ed Njar\u00f0v\u00edk \u00ed kringum 11. \u00e1g\u00fast 2016. \u00dev\u00ed m\u00e1li var v\u00edsa\u00f0 til me\u00f0fer\u00f0ar \u00e1 stj\u00f3rns\u00fdslusvi\u00f0, og \u00feau \u00e1ttu a\u00f0 taka \u00e1kv\u00f6r\u00f0um um refsingu fyrir \u00feetta brot.\u00a0 7.11.16 var \u00fea\u00f0 m\u00e1l enn\u00fe\u00e1 \u00ed vinnslu \u00e1 svi\u00f0inu \u00feegar grunur kom upp um a\u00f0 aftur hef\u00f0i kettling veri\u00f0 hent \u00fat af \u00feessu heimili og vi\u00f0 t\u00f3kum hann inn.<\/p>\n<p>Stj\u00f3rn VILLIKATTA \u00feykir \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 MAST endursko\u00f0i verkferla s\u00edna \u00feegar kemur a\u00f0 d\u00fdravelfer\u00f0arm\u00e1lum.\u00a0 M\u00e1lin dragast allt of lengi og skortur er \u00e1 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um og \u00farr\u00e6\u00f0um \u00ed svona m\u00e1lum. Sveltandi, deyjandi d\u00fdr \u00feola ekki a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 fari \u00ed gegnum margra m\u00e1na\u00f0a skriffinskuferli sem svo kannski endar bara me\u00f0 afl\u00edfun d\u00fdranna vegna \u00feess a\u00f0 \u00f6nnur \u00farr\u00e6\u00f0i vir\u00f0ast ekki vera fyrir hendi.\u00a0\u00a0 Engin d\u00fdraathv\u00f6rf, enginn fj\u00e1rstyrkur til g\u00f3\u00f0ger\u00f0af\u00e9laga sem hugsanlega t\u00e6kju a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 sinna svona m\u00e1lum, engar lausnir nema afl\u00edfun d\u00fdranna.<\/p>\n<p><strong>Forstj\u00f3ri MAST lofa\u00f0i b\u00f3tum og betrun \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum, n\u00fa er lag fyrir MAST a\u00f0 b\u00e6ta \u00far ofant\u00f6ldum vank\u00f6ntum og svara \u00feeim erindum sem vi\u00f0 nefndum h\u00e9r a\u00f0 ofan.<\/strong><\/p>\n<p><strong>Umfj\u00f6llun Fj\u00f6lmi\u00f0la um 100 katta m\u00e1li\u00f0:<\/strong><br \/>\n<a href=\"https:\/\/villikettir.is\/en\/2016\/07\/27\/adkoma-villikatta-ad-bjorgun-75-katta-ur-slaemum-adstaedum-a-sudurnesjum-i-mars-2016\/\">http:\/\/www.villikettir.is\/2016\/07\/27\/adkoma-villikatta-ad-bjorgun-75-katta-ur-slaemum-adstaedum-a-sudurnesjum-i-mars-2016\/<\/a><\/p>\n<p><strong>Umfj\u00f6llun Fj\u00f6lmi\u00f0la um Meind\u00fdraey\u00f0ism\u00e1li\u00f0:<\/strong><\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2016\/09\/13\/villikettir_hugsanlega_felldir_i_leyfisleysi\/\">http:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2016\/09\/13\/villikettir_hugsanlega_felldir_i_leyfisleysi\/<\/a><\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2016\/07\/22\/utilokar_adkomu_baejarstarfsmanns_3\/\">http:\/\/www.mbl.is\/frettir\/innlent\/2016\/07\/22\/utilokar_adkomu_baejarstarfsmanns_3\/<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Umfj\u00f6llun um kettlingana 6:<\/strong><br \/>\n<a href=\"http:\/\/www.dv.is\/frettir\/2016\/6\/28\/sex-kettlingum-hent-eins-og-hverjum-odrum-urgangi\/\">http:\/\/www.dv.is\/frettir\/2016\/6\/28\/sex-kettlingum-hent-eins-og-hverjum-odrum-urgangi\/<\/a><\/p>\n<p>http:\/\/www.vf.is\/frettir\/kettlingar-skildir-eftir-i-gardaurgangi\/70548<\/p>\n<p><strong>Eitt anna\u00f0 m\u00e1l sem Villikettir komu a\u00f0 snemma \u00e1 \u00e1rinu:<\/strong><br \/>\n<a href=\"http:\/\/www.visir.is\/-folk-sem-vildi-adstoda-en-var-i-raun-ad-gera-illt-verra-\/article\/2016160219374\">http:\/\/www.visir.is\/-folk-sem-vildi-adstoda-en-var-i-raun-ad-gera-illt-verra-\/article\/2016160219374<\/a><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/villikettir.is\/wp-content\/uploads\/2016\/07\/Juliaa.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-339 alignleft\" src=\"http:\/\/www.villikettir.is\/wp-content\/uploads\/2016\/07\/J\u00fal\u00edaa-225x300.jpg\" alt=\"J\u00fal\u00edaa\" width=\"225\" height=\"300\" \/><\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Deildu \u00feessari f\u00e6rslu \u00e1 Facebook me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 F hnappinn h\u00e9r a\u00f0 ne\u00f0an<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd lj\u00f3si fr\u00e9tta um Br\u00fanegg og gagnr\u00fdni \u00e1 MAST sem eftirlitisstofnun \u00fe\u00e1 langar okkur a\u00f0eins a\u00f0 rifja upp me\u00f0 ykkur samskipti okkar vi\u00f0 \u00fe\u00e1 stofnun \u00e1 \u00feessu \u00e1ri vegna 3ja m\u00e1la sem vi\u00f0 tilkynntum til MAST \u00e1 \u00feessu \u00e1ri. 100 katta m\u00e1li\u00f0 \u00cd apr\u00edl 2016 haf\u00f0i kona samband vi\u00f0 okkur \u00fear sem h\u00fan var komin [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":9702,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"saved_in_kubio":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[28],"tags":[],"class_list":["post-408","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kisufrettir"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/villikettir.is\/wp-content\/uploads\/2016\/07\/Embla.jpg","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/408","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=408"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/408\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":10115,"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/408\/revisions\/10115"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/9702"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=408"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=408"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/villikettir.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=408"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}