Aðalfundur Villikatta verður 30. mars 2025

Aðalfundur Villikatta verður haldinn þann 30. mars 2025 kl 13:00 í húsnæði Iðunnar fræðsluseturs að Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Hægt er að taka þátt í aðalfundi í gegnum streymi. Þeir félagsmenn sem vilja taka þátt í streymi, verða að tilkynna slíkt og senda inn tölvupóst á villikettir@villikettir.is, í síðasta lagi tveimur dögum fyrir fund og taka fram nafn og kenntiölu. Þeim verður þá sendur hlekkur á fundinn. Aðeins félagsmenn geta tekið þátt í streymi.

Frestur til að skila inn framboðum í stjórn félagsins og tillögum að lagabreytingum rennur út þann 16. mars. Framboð skulu send á netfang félagsins villikettir@villikettir.is, þar sem tekið er fram nafn og kennitala og hvort framboð er í stjórn eða varastjórn.

Samkvæmt 8. gr. í lögum Villikatta þá er formaður kjörinn til eins árs í senn og meðstjórnendur skulu kosnir tveir í einu til tveggja ára. Því er kosið um formann og tvo meðstjórnendur árið 2025. Anna Jóna Ingu Ólafardóttir og Ragna Þorsteinsdóttir eru sjálfkrafa áfram í stjórn.

Tillögum að lagabreytingum skal einnig senda á villikettir@villikettir og þurfa að berast stjórn viku fyrir aðalfund. Nýiir meðlimir geta ekki haft áhrif á eða komið með tillögur að lagabreytingum fyrr en á öðrum aðalfundi eftir fulla meðlimagildingu.

Kjörgengi til stjórnar eru meðlimir sem að hafa haft fulla meðlimagildingu í 2 ár, nema að fengnu samþykki sitjandi stjórnar.